Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar í Pepsi Max-deild kvenna, staðfesti eftir 5-0 tap liðsins gegn Keflavík að Renae Cuellar væri farin frá félaginu
Renae kom til Stjörnunnar fyrir tímabilið og spilaði í heildina sex leiki en hún spilaði fimm sinnum í deild og skoraði eitt mark og þá lék hún einn bikarleik.
Hún virtist ekki passa inn í hugmyndafræði Stjörnunnar en hún var ekki í leikmannahópnum í kvöld.
Kristján staðfesti við Fótbolta.net að hún væri farin frá félaginu.
„Renae er farin heim. Ágætis leikmaður en hún passaði ekki inn í hjá okkur," sagði Kristján við Fótbolta.net.
Athugasemdir