Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. júní 2019 18:24
Arnar Helgi Magnússon
Tottenham að ganga frá sínum fyrstu kaupum
Mynd: Getty Images
Tottenham er að ganga frá kaupunum á Jack Clarke, átján ára kantmanni Leeds. Það er Sky sem greinir frá.

Viðræður liðanna hafa staðið yfir í nokkra daga og svo virðist sem að liðin hafi nú náð saman varðandi kaupverð. Talið er að Tottenham muni borga 8.5 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Clarke lék 25 leiki fyrir Leeds á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk á samt því að leggja upp önnur tvö.

Clarke verður fyrsti leikmaðurinn sem að Pochettino kaupir til liðsins síðan í janúar á síðasta ári þegar að hann fékk Lucas Moura.

Tottenham mætir Aston Villa í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem að hefst þann 9. ágúst.
Athugasemdir
banner
banner
banner