Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 25. júní 2019 13:00
Arnar Daði Arnarsson
Vesna Elísa gæti leikið með Val í sumar
Vesna Elísa.
Vesna Elísa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hin reynslu mikla Vesna Elísa Smiljkovic hefur æft með Valsliðinu síðustu mánuði en hún hefur verið að koma til baka eftir barnsburð.

Vesna Elísa lék síðast með Val í Pepsi-deildinni sumarið 2017 þar sem hún lék 16 leiki og skoraði sjö mörk. Auk þess að skora eitt mark í tveimur bikarleikjum.

Vesna kom til landsins árið 2005 og lék þá fjögur tímabil með Keflavík þar sem hún fór norður á Akureyri og lék tvö timabil með Þór/KA. Eftir það fór hún til Vestmannaeyja og lék þar fjögur tímabil.

Hún gekk hinsvegar til liðs við Vals fyrir tímabilið 2015 og lék með liðinu þrjú tímabil. Hún lék hinsvegar ekkert með liðinu í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð þar sem hún gekk með barn.

Hún er nú kominn til baka og gæti leikið með Val bæði í Mjólkurbikarnum og í Pepsi Max-deildinni þar sem Valur er í harðri toppbaráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner