Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. júní 2020 14:10
Magnús Már Einarsson
Andy Carroll og Javier Manquillo framlengja við Newcastle
Andy Carroll fagnar marki.
Andy Carroll fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Javier Manquillo og Andy Carroll hafa báðir undirritað nýja samninga við Newcastle.

Carroll kom aftur til Newcastle síðastliðið sumar og þessi hávaxni framherji hefur nú framlengt samning sinn um ár til viðbótar.

Spænski varnarmaðurinn Manquillo hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning.

Nabil Bentaleb og Danny Rose hafa einnig framlengt lánssamninga um einn mánuð, eða út tímabilið.

Búist er við að Valentino Lazaro, sem er á láni frá Inter geri slíkt hið sama. Miðjumaðurinn Matty Longstaff hefur einnig framlengt samninginn út tímabilið en alls óvíst er hins vegar með framhaldið hjá honum fyrir næsta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner