Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fim 25. júní 2020 00:07
Anton Freyr Jónsson
Árni Snær: Verðum í toppstandi á sunnudaginn
Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA.
Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir og ÍA mættust í maraþon leik í Safamýri í kvöld og endaði leikurinn 2-3 gestunum í vil og kom sigurmark leiksins ekki fyrr en í lok fyrrihálfleik framlengingar.

Lestu um leikinn: Kórdrengir 2 -  3 ÍA

Árni Snær Ólafsson markvörður Skagamanna var ánægður að leikslokum með að vera komin áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikar karla

„Bara léttir að vera komnir áfram, það var það sem skipti máli í þessu sko þó það hafi verið ljótt í dag."

Árni var spurður hvort það sitji ekki í liðinu að hafa ekki unnið meira sannfærandi á móti Kórdrengjum sem eru í 2.deild

„Nei. Jói sagði fyrir leik bara að komast áfram alveg sama hvernig það væri, 1-0, vító, drullusama þetta snýst bara um að komast áfram. þó við hefðum alveg viljað vera öruggari með þetta en þetta var bara allt í lagi."

Skagamenn fá Íslandsmeistarana í heimsókn á Sunnudaginn og var Árni spurður hvort það hafi ekki verið óþarfi að leikurinn hafi þurft að fara alla leið í framlengingu og tók Árni undir það.

„Já algjörlega, við erum í flottu standi, náum að recovera á milli leikja núna þó þessar 30 mínútur hafi kannski eitthvað að segja, en ekki á Sunnudaginn þá verðum við í toppstandi."
Athugasemdir
banner
banner