fim 25. júní 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Dyche að gefast upp hjá Burnley?
Mynd: Getty Images
Sean Dyche, stjóri Burnley, gæti hætt störfum hjá félaginu eftir tímabilið samkvæmt fréttum frá Englandi.

Samband Dyche og formannsins Mike Garlick hefur ekki verið gott undanfarna mánuði.

Dyche er mjög ósáttur við að Burnley hafi ekki gengið frá framlengingu á samningi við nokkra leikmenn í vetur.

Þá hefur Dyche fengið þau skilaboð að hann fái lítið fjármagn til leikmannakaupa í sumar.

Dyche hefur gert magnaða hluti með Burnley en hann hefur fest liðið í sessi í ensku úrvalsdeildinni og ítrekað blásið á hrakspár um fall.
Athugasemdir
banner
banner
banner