Það er að myndast mikil barátta um að fá efnilegan Brasilíumann á láni frá Real Madrid fyrir næstu leiktíð.
Um er að ræða hinn 18 ára gamla Reinier sem kom til Real Madrid frá Flamengo í janúar síðastliðnum.
Reinir er mjög efnilegur miðjumaður, en sagan segir Real Zaragoza, Real Sociedad og Real Valladolid vilji öll fá hann á láni fyrir næsta tímabil.
Zaragoza er að berjast um sæti í úrvalsdeild, en tvö félögin sem nefnd eru, þau eru bæði í spænsku úrvalsdeildinni.
Hann hefur einnig verið orðaður við Bayer Leverkusen í Þýskalandi, en talið er að Real Madrid vilji að hann venjist spænska boltanum og spænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir