Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. júní 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rebekah Vardy í mál við Coleen Rooney
Wayne Rooney, Coleen og börn þeirra.
Wayne Rooney, Coleen og börn þeirra.
Mynd: Getty Images
Rebekah Vardy, eiginkona Jamie Vardy, hefur ákveðið að fara í meiðyrðarmál við Coleen Rooney, eiginkonu Wayne Rooney.

Coleen sagði í október á síðasta ári frá því að hún hefði með klækjabrögðum komist að því að Rebekah væri að leka upplýsingum af lokaðri Instagram síðu sinni til slúðurblaða.

Rebekah hefur ávallt neitað sök og ætlar hún sér í mál við Coleen fyrir ásakanir hennar.

Wayne Rooney er fyrirliði Derby County í Championship-deildinni og Vardy er sóknarmaður Leicester í ensku úrvalsdeildinni. Þeir eru fyrrum félagar í enska landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner