Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. júní 2020 22:33
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sóli til 'samfélagsins': Takk fyrir að hafa trú
Sóli ásamt Baldri Kristjánssyni.
Sóli ásamt Baldri Kristjánssyni.
Mynd: Úr einkasafni
Sólmundur Hólm, oftast kallaður Sóli, er formaður hins svokallað Liverpool-samfélags á Íslandi.

Sóli tók að sér þetta hlutverk fyrir einhverju síðan og hefur ítrekað stappað stálinu í 'þegna' samfélagsins.

Í kjölfar þess að Liverpool varð Englandsmeistari í kvöld setti Sóli inn færslu á Twitter.

„Kæru þegnar! Ég get ekki sagt neitt sem getur túlkað þær tilfinningar sem brjótast innra með okkur öllum á þessum tímapunkti. Takk fyrir að hafa trú á því að ég gæti leitt okkur á þennan stað sem við erum komin á núna. Við erum best sameinuð. LUV, Formaðurinn!" skrifaði Sóli.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner