Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 25. júní 2020 21:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stuðningsmenn Liverpool fagna með flugeldum
Myndin er ekki frá því í kvöld.
Myndin er ekki frá því í kvöld.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool hafa svo sannarlega ástæðu til að fagna í kvöld þar sem nítjándi Englandmeistaratitill félagsins var tryggður í kvöld.

Chelsea aðstoðaði annað lið við að tryggja titilinn í annað sinn á síðustu fjórum árum. Vorið 2016 gerðist það sama þegar Chelsea gerði jafntefli gegn Tottenham og varð Leicester það kvöld öruggt með Englandsmeistaratitillinn.

Samfélagsmiðillinn Twitter flæðir af færslum um titilinn og óskar Fótbolti.net Liverpool mönnum til hamingju með langþráðan titil, þann fyrsta í þrjátíu ár.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður á RÚV, segir frá því að nágrannar sínir séu að skjóta upp flugeldum til að fagna áfanganum.


Athugasemdir
banner
banner