Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fim 25. júní 2020 14:25
Elvar Geir Magnússon
Þrír leikmenn fara frá Everton
Baines og Sidibe klára tímabilið
Oumar Niasse.
Oumar Niasse.
Mynd: Getty Images
Oumar Niasse, Cuco Martina og Luke Garbutt munu allir yfirgefa Everton þegar samningar þeirra renna út núna um mánaðamótin.

Sóknarmaðurinn Niasse kom til Everton þegar Roberto Martínez var stjóri liðsins. Hann kom frá Lokomotiv Moskvu á 13,5 milljónir punda í janúar 2016.

Martina kom á frjálsri sölu frá Southampton en hann er hægri bakvörður.

Garbutt er 27 ára vinstri bakvörður sem kom frá Leeds fyrir níu árum síðan en lék aðeins tólf aðalliðsleiki fyrir Everton.

Annars er það að frétta af Everton að Leighton Baines hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum út tímabilið og hefur auk þess fengið boð um eins árs samning til viðbótar.

Djibril Sidibe hefur framlengt lánssamningi sínum frá Mónakó og klárar því tímabilið með þeim bláu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner