Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. júlí 2021 21:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingsvelli
Halli rotaðist og fékk skurð
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, var borinn af velli snemma í seinni hálfleik þegar Stjarnan mætti Víkingi á Víkingsvelli í kvöld.

Halli fékk höfuðhögg þegar leikmaður Víkings, Nikolaj Hansen, fór í markvörðinn þegar hann reyndi að ná til boltans í teignum. Halli var borinn af velli og sjúkrabíll mætti skömmu síðar í Víkina og flutti Halla á sjúkrahús.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Stjarnan

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var spurður út í stöðuna á Halla í viðtali eftir leik.

„Ég get ekki svarað því núna, hann rotaðist áðan og er með skurð. Staðan er ekki góð," sagði Toddi.

„Vonandi er allt í lagi með Halla, þetta var svakalegt samstuð sem þeir lentu í," sagði Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.
Athugasemdir
banner
banner