Fotbolti.net
25.08.18 - 08:22
Gunnar Logi Gylfason

Rafa stendur með reiðum stuðningsmönnum

Rafa stendur með reiðum stuðningsmönnum
Canon

Mynd: Getty Images

Rafa Benítez, knattspyrnustjóri Newcastle, stendur með reiðum stuðningsmönnum félagsins sem ætla að mótmæla Mike Ashley, eiganda félagsins.
Stuðningsmannahópur félagsins ætlar að mótmæla fyrir utan Sports Direct í miðbænum fyrir leik liðsins gegn Chelsea á morgun.

„Ég vorkenni stuðningsmönnum okkar þar sem þeir eru mjög góðir. Þeir þekkja borgina, félagið, norðaustrið og hversu gott er að búa hér. Þeir þekkja þetta allt. Þeir vilja sjá félagið gera hlutina rétt. Við höfum tækifæri á að verða stórt félag en við þurfum að halda rétt á spilunum,\" sagði Benítez.

Newcastle tekur á móti bikarmeisturum Chelsea á St. James\' Park á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.