Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. september 2018 20:23
Brynjar Ingi Erluson
Alfons og Rúnar Már í tapliðum
Alfons Sampsted var í byrjunarliði Landskrona í dag
Alfons Sampsted var í byrjunarliði Landskrona í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir Íslendingar voru á ferðinni í Evrópuboltanum fyrr í kvöld en Halmstad er komið í mikla baráttu um að komast upp um deild eftir 2-1 sigur á Landskrona.

Höskuldur Gunnlaugsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir á bekknum hjá Halmstad en Alfons Sampsted spilaði allan leikinn fyrir Landskrona. Leiknum lauk með 2-1 sigri Halmstad og er liðið nú í 4. sæti með 44 stig.

Rúnar Már Sigurjónsson lék þá allan leikinn er Grasshopper tapaði fyrir Thun 2-0. Grasshopper er í sjöunda sæti deildarinnar með 8 stig.

Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leikmannahópnum hjá Nantes sem tapaði 2-1 fyrir Nice.
Athugasemdir
banner
banner