Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. september 2018 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Balotelli mætir fyrr á æfingar
Mynd: Getty Images
Franskir fjölmiðlar segja að Mario Balotelli mæti fyrr á æfingar hjá Nice eftir að hafa bætt verulegri þyngd á sig í sumarfríinu.

Balotelli, sem var næstum farinn til Marseille í sumar, mætir á æfingar klukkan 7:30 á morgnana í tilraun til að koma sér aftur í gott form.

Nice er með sjö stig eftir sex fyrstu leikina undir stjórn Patrick Vieira. Balotelli spilaði aðeins tvo leiki, hann var ýmist í leikbanni eða meiddur hina leikina.

Balotelli er 28 ára gamall og þarf heldur betur að taka sig á vilji hann uppfylla draum sinn um að verða aðalsóknarmaður ítalska landsliðsins á nýjan leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner