Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. september 2018 17:15
Magnús Már Einarsson
Deeney: Ég hata Van Dijk
Troy Deeney.
Troy Deeney.
Mynd: Getty Images
„Ég hef sagt það oft áður, ég hata hann. Ég hata að mæta honum," sagði Troy Deeney, framherji Watford, þegar hann ræddi um Virgil van Dijk varnarmann Liverpool í dag.

Van Dijk kom til Liverpool frá Southampton í janúar og hefur bætt varnarleik liðsins mikið.

Deeney hefur oft mætt Van Dijk í gegnum tíðina og átt erfitt uppdráttar.

„Hann er of stór, of fljótur, of góður með boltann, hann elskar að berjast og hann er góður skallamaður."

„Þetta er einn af þeim sem setur boltann glæsilega út í hornin líka. Þegar hann hleypur framhjá þér þá hugsar þú 'ég gæti náð þér, en..."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner