Manchester United og Derby County eru að gera 1-1 jafntefli í enska deildabikarnum en jöfnunarmark Derby var af dýrari gerðinni.
Juan Mata kom United yfir eftir frábæra sókn á 3. mínútu leiksins áður en Harry Wilson jafnaði metin.
Harry er á láni hjá Derby frá Liverpool en hann jafnaði metin í kvöld á 59. mínútu. Markið var rándýrt en hann skoraði úr aukaspyrnu af 30 metrunum í samskeytin. Óverjandi fyrir Sergio Romero, sem var rekinn af velli nú rétt í þessu fyrir að handleika knöttinn utan teigs.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Harry Wilson just scored this goal for Derby County vs Man United. This is filthy. OH MY GOD. 👏🏻👏🏻 pic.twitter.com/lMOkJqmHQl
— World Cup (@FlFAWC2018) September 25, 2018
Athugasemdir