Deschamps vill að PSG hvíli Mbappe fyrir HM - „Þarf að fá tíma til að anda"

Kylian Mbappe

Mynd: EPA

Kylian Mbappe

Mynd: EPA
Didier Deschamps, þjálfari franska landsliðsins, vill að Paris Saint-Germain hvíli Kylian Mbappe fyrir HM í Katar.
Mbappe, sem er 23 ára gamall, er auðvitað stórstjarna bæði í félagsliði og landsliði.
Hann spilar alla leiki fyrir PSG en Deschamps vonast eftir því að PSG leyfi honum að hvíla í nokkrum leikjum fyrir HM í Katar.
Deschamps vill fá frískan Mbappe á heimsmeistaramótið og telur að Christophe Galtier, þjálfari PSG, láti hann spila færri mínútur því leikmaðurinn myndi njóta góðs af því.
„Ég veit að Galtier vill halda áfram að spila Kylian. Hann þarf samt að fá tíma til að anda aðeins og spila færri mínútur í nokkrum leikjum. Það mun ekki hafa áhrif á hann, alveg þvert á móti," sagði Deschamps við Telefoot.