Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   þri 25. október 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ajax hefur framleitt flesta leikmenn Evrópu
Mynd: EPA

CIES Football Observatory tekur saman ýmis gögn úr fótboltaheiminum og býr til áhugaverða tölfræði.


Á dögunum birti rannsóknarhópurinn tölfræði um hvaða félög hafa alið upp flesta atvinnumenn í evrópska fótboltaheiminum og í ljós kom að Ajax trónir þar á toppinum.

Ajax hefur alið upp 85 atvinnumenn í 31 bestu deildum Evrópu. Benfica er í öðru sæti með 73 uppalda leikmenn og svo kemur Dynamo Kyiv með 72.

Ekkert enskt félag kemst á topp tíu listann en Real Madrid er í sjöunda sæti með 60 uppalda leikmenn og Barcelona í níunda með 59.

Manchester United er efst á lista yfir ensku félögin með 46 uppalda leikmenn í Evrópu. Man Utd er í 21. sæti og svo kemur Arsenal í 25. sæti með 41 uppalda á víð og dreif um Evrópu.

Ef skoðuð er hins vegar tölfræði yfir uppalda leikmenn í fimm stærstu deildum Evrópu breytist tölfræðin. Þar tróna Real Madrid og Barca á toppinum og deila Lyon og PSG þriðja sætinu með 34 uppalda leikmenn hvort.

Man Utd er þar í fimmta sæti með 28 leikmenn en svo koma Valencia, Sporting CP, Atalanta og Chelsea í næstu sætum fyrir neðan.


Slapp
banner
banner