Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   þri 25. október 2022 10:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Brekkan verið löng en náði að blómstra í sumar - „Gott að gera eitthvað sem pabbi hefur ekki gert"
Þetta er eitthvað sem ég er búinn að dreyma um síðan ég var lítill
Þetta er eitthvað sem ég er búinn að dreyma um síðan ég var lítill
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Dagur verður með A-landsliðinu í Dúbaí og Suður-Kóreu
Dagur verður með A-landsliðinu í Dúbaí og Suður-Kóreu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er búinn að vera einn af betri mönnunum í þessari deild í sumar
Hann er búinn að vera einn af betri mönnunum í þessari deild í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dagur Dan Þórhallsson hefur verið einn allra besti leikmaður tímabilsins í Bestu deildinni og lykilmaður í liði Breiðabliks sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn fyrr í þessum mánuði. Dagur átti ekki frábært tímabil með Fylki í fyrra en hefur blómstrað undir stjórn Óskar Hrafns Þorvaldssonar á leiktíðinni.

Dagur byrjaði sem varamaður hjá Breiðabliki en var fljótur að grípa tækifærið þegar Viktor Karl Einarsson meiddist snemma móts og hefur verið fastamaður í liðinu síðan. Um helgina skoraði hann þrennu gegn Val og komu öll mörkin með skotum fyrir utan teig, þar af tvö beint úr aukaspyrnu.

Dagur ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn. Blikar taka við Íslandsmeistaraskildinum eftir leikinn gegn Víkingi um næstu helgi.

„Árið 2018 þá horfði ég á Valsmenn taka við bikarnum, þá var ég að falla (með Keflavík), það var síðasti leikurinn og full stúka á Origo vellinum. Þá var ég hágrátandi út af því ég var fallinn og mér fannst þetta ömurlegt. Það er gott að vera á hinum endanum og vera fara taka við skildinum. Þetta er eitthvað sem ég er búinn að dreyma um síðan ég var lítill. Pabbi (Þórhallur Dan Jóhannsson) hefur aldrei unnið Íslandsmeistaratitil og það er gott að gera eitthvað sem hann hefur ekki gert. (Öll erfðin) er loksins að skila sér núna," sagði Dagur og brosti.

Tróð stærsta sokknum upp í pabba sinn
Fótbolti.net ræddi við pabba Dags fyrir leikinn gegn Val og spurði hann út í Dag sem hefur leikið bæði í Belgíu og Noregi á sínum ferli. Sérðu hann fara aftur erlendis í vetur?

„Honum líður ótrúlega vel í Breiðabliki. Ég tel hann alveg nógu góðan til að komast að erlendis en það þarf að vera rétt lið, með réttan þjálfara og rétta taktík. Eins og staðan er núna líður honum ótrúlega vel og ég er alveg ótrúlega ánægður fyrir hans hönd því þetta hefur verið ansi löng brekka sem hann hefur verið að labba upp undanfarin ár. Það kemur mér í raun ekki á óvart það sem hann hefur verið að gera í sumar, ég vissi alltaf að hann væri góður í fótbolta og hefur frá því hann var krakki stigið upp í þær aðstæður sem hann hefur verið settur inn í. Hvort hann fari út í vetur eða einhvern tímann seinna, ég veit það ekki. Aðalatriðið er að honum líður vel og það sést á því hverning hann spilar."

Hlutirnir hjá Degi á meðan hann var leikmaður Mjöndalen gengu ekki alveg upp og eins og fyrr segir náði hann ekki að blómstra með Fylki í fyrra.

„Óskar og Halldór hafa gert alveg ótrúlega góða hluti fyrir hann, kennt honum ótrúlega margt. Hópurinn hefur líka kennt honum mikið, Dagur hefur þroskast mjög hratt - áttað sig á því um hvað þetta snýst. Hann hefur vissulega hæfileika til að fara út en hvort það verður á þessu tímabili eða seinna - það verður bara að koma í ljós."

Dagur var valinn í landsliðið í síðustu viku sem spilar vináttuleiki gegn Sádí-Arabíu og Suður-Kóreu.

„Það er ótrúlega gaman og verðskuldað þó ég segi sjálfur frá - ég er aðeins hlutdrægur. Hann er búinn að vera einn af betri mönnunum í þessari deild í sumar finnst mér. Hann tróð kannski stærsta sokknum ofan í pabba sinn með því að sýna hversu ótrúlega fjölhæfur hann er og góður í öllum stöðum," sagði Tóti Dan.

Sjá einnig:
Tóti Dan fer ófögrum orðum um þjálfara Fylkis og U21 árs landsliðsins (14. des '21)
Dagur Dan skýtur á pabba sinn: Hann elskar að tala
Dagur Dan: Ég er búinn að æfa þetta nákvæmlega svona í allt sumar
Slapp
banner