Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   þri 25. október 2022 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin í dag - Man City heimsækir Dortmund
Chelsea getur tryggt toppsæti E-riðils með sigri.
Chelsea getur tryggt toppsæti E-riðils með sigri.
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Það eru átta leikir á dagskrá í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld og fer fjörið af stað klukkan 16:45 þegar RB Salzburg tekur á móti Chelsea í E-riðli, á sama tíma og Íslendingalið FC Kaupmannahafnar heimsækir Sevilla til Spánar í G-riðli.


Chelsea tryggir sér toppsæti riðilsins með sigri í Austurríki þar sem liðið er með eins stigs forystu á Salzburg þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni. Dinamo Zagreb og AC Milan eru einnig með í riðlinum og mætast í gríðarlega mikilvægum úrslitaleik í kvöld.

Sigurliðið í Zagreb getur blandað sér í baráttuna um toppsætin á meðan tapliðið mun sitja eftir á botninum. Jafntefli gæti reynst liðunum vel en staðan í riðlinum yrði þá ansi flókin.

Real Madrid getur tryggt sér toppsæti F-riðils með sigri á útivelli gegn RB Leipzig sem er í öðru sæti. Shakhtar Donetsk er aðeins einu stigi eftir Leipzig og mætast liðin í mögulegum úrslitaleik um annað sætið í lokaumferðinni. Shakhtar heimsækir botnlið Celtic í kvöld.

Þá er komið að G-riðli þar sem Orri Steinn Óskarsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson deila botnsætinu með Sevilla þar sem bæði lið eru með tvö stig eftir fjórar umferðir. Leikurinn í dag er úrslitaleikur um þriðja sætið, sem veitir þátttökurétt í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar.

Manchester City er á toppi riðilsins og Borussia Dortmund í öðru sæti. Liðin mætast í stórleik umferðarinnar en City er búið að tryggja sig upp úr riðlinum á meðan Dortmund nægir að öllum líkindum eitt stig úr síðustu tveimur umferðunum til að komast áfram.

Að lokum er komið að H-riðli þar sem PSG og Benfica geta tryggt sig í 16-liða úrslitin með jafnteflum í kvöld. Juventus og Maccabi Haifa deila þriðja sætinu eftir óvænt tap Juve í Ísrael í síðustu umferð.

Juve þarf sigur á útivelli gegn Benfica til að eiga möguleika á að komast upp úr riðlinum. Maccabi Haifa heimsækir PSG til Frakklands.

E-riðill
16:45 RB Salzburg - Chelsea
19:00 Dinamo Zagreb - AC Milan

F-riðill
19:00 Celtic - Shakhtar Donetsk
19:00 RB Leipzig - Real Madrid

G-riðill
16:45 Sevilla - FC Kaupmannahöfn
19:00 Dortmund - Man City

H-riðill
19:00 PSG - Maccabi Haifa
19:00 Benfica - Juventus


Slapp
banner