Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. nóvember 2022 16:17
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Gakpo funheitur á HM - Kom Hollandi yfir með þrumufleyg
Mynd: Getty Images
Nú stendur yfir leikur Hollands og Ekvador, liða sem unnu bæði í fyrstu umferð HM í Katar.

Hollendingar tóku forystuna strax á sjöttu mínútu þegar Cody Gakpo skoraði mark frá vítateigslínunni, þrumufleygur.

Gakpo spilar fyrir PSV Eindhoven en var síðasta sumar sterklega orðaður við Manchester United. Þessi 23 ára leikmaður er kominn með tvö mörk á mótinu en hann kom Hollandi einnig yfir gegn Senegal.

Holland er að vinna 1-0 en 17 mínútur eru liðnar af leiknum þegar þessi orð eru skrifuð.


Athugasemdir
banner
banner
banner