Fotbolti.net
26.01.20 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Firmino: Mane hermir eftir öllu sem ég geri

Firmino: Mane hermir eftir öllu sem ég geri
Canon

Mynd: Getty Images

Roberto Firmino og Sadio Mane ná vel saman í framlínu Liverpool. Þeir leika þar tveir ásamt Mo Salah þegar Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, velur sitt sterkasta lið.

Firmino var með létt skot á liðsfélaga sinn í liðinni viku þar sem hann skaut á fögn Senegalans.
„Ég segi alltaf við hann að hann hermi eftir fögnunum mínum. Hann apar allt eftir mér," sagði Firmino.

„Við ræðum þetta reglulega og hann neitar að hann sé að herma og segist búa þetta til sjálfur. Það er fyndið. Hann segir að hann búi til fagn ef hann fagnar með báðum höndum en ég bara með annarri," sagði brasilíski framherjinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.