Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 26. janúar 2020 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fram auglýsir eftir þjálfara fyrir meistaraflokk kvenna
Mynd: Fram - logo
Knattspyrnufélagið Fram auglýsir eftir þjálfara í sameiginlegt starf þjálfara meistaraflokk kvenna og yfirþjálfara kvenna.

Fram flytur á næstu árum í glæsilega aðstöðu í Úlfarsárdal en hefur þegar hafið flutning kvennaflokka þangað. Starf yfirþjálfara snýr að uppbyggingu kvennaknattspyrnu í Úlfarsárdal og Grafarholti ásamt þjálfun á amk. einum yngri flokk. Einnig er Fram að byrja aftur með meistaraflokk kvenna og þarf öflugan þjálfara til að ýta því starfi úr vör.

Umækjendur þurfa að hafa UEFA A þjálfaragráðu eða vera í ferli með hana. Hafa reynslu af þjálfun kvennaflokka og vera frambærilegir í ræðu og riti. Almenn tölvukunnátta þarf að vera í lagi.

Fram hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Allar nánari upplýsingar gefur Kolbrún Ósk Eyþórsdóttir formaður mfl.ráðs kvenna, [email protected]. Umsóknum skal skilað á sama netfang fyrir 1. febrúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner