Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. mars 2019 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KB með ólöglegan leikmann - Sekt og 3-0 tap
Úr leik hjá KB.
Úr leik hjá KB.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lið KB var ólöglega skipað í leik gegn Berserkjum í Lengjubikar karla þegar liðin mættust 16. mars síðastliðinn. Arnór Ingi Guðjónsson lék með KB í leiknum, en er skráður í Leikni Reykjavík.

Þetta kemur fram á vefsíðu KSÍ.

Í reglugerðum KSÍ um deildarbikarkeppni karla og kvenna, greinum 10.1 og 11.2 segir:

10. SEKTIR

10.1 Lið, sem mætir ólöglega skipað til leiks, skal sæta sekt að upphæð kr. 30.000 og að auki kr. 30.000 fyrir hvern leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með viðkomandi félagi og tekur þátt í leiknum. Félag, sem notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, skal sæta sektum að upphæð kr. 100.000.

11. STJÓRN KEPPNINNAR

11.2 Félag, sem notar leikmann sem ekki hefur keppnisleyfi með því eða notar leikmann, þjálfara eða forystumann í leikbanni, telst hafa tapað leiknum með markatölunni 0-3 nema tap hafi verið stærra, þá skal sú markatala ráða. Staðfesti skrifstofa KSÍ að þátttakandi hafi verið óhlutgengur í leik skal mótanefnd þegar í stað skrá úrslit leiksins skv. ofangreindu og tilkynna það viðkomandi félögum. Heimilt er að kæra slíka skráningu til aga- og úrskurðarnefndar KSÍ og skal kærufrestur telja frá þeim degi sem tilkynningin er gefin út.

Í samræmi við ofangreinda reglugerð eru úrslit leiksins skráð 3-0 Berserki og KB er sektað um kr. 60.000.

Leikurinn fór upprunalega 2-2 en úrslitum hefur núna verið breytt.
Athugasemdir
banner
banner