Það hafa margir kallað eftir því að hinir kostulegu Guðmann Þórisson og Björn Daníel Sverrisson verði í kastljósinu í netsjónvarpsþáttunum um Fimleikafélagið.
Nú hefur ósk margra ræst því kominn er út nýr þáttur þar sem þessum tveimur leikmönnum FH er fylgt eftir á einum degi.
Óhætt er að mæla með þessum þætti en þeir félagar skella sér meðal annars í myndatöku hjá Stöð 2 Sport og lenda í ýmsum óhöppum.
Báðir eru þeir komnir aftur í FH, Guðmann kom frá KA í vetur og Björn Daníel frá Viking í Noregi.
FH mætir HK á morgun í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Pepsi Max-deildin:
föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)
Athugasemdir