Eyjaálfumótið átti að fara fram í Nýja-Sjálandi í júní en því hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Kórónuveirunni hefur tekist að dreifa sér um allan heim og er knattspyrnuheimurinn lamaður rétt eins og flestar aðrar hliðar samfélagsins.
Ellefu landslið taka þátt í mótinu á hverju ári og eru flest landanna að glíma við veiruna og hafa þurft að loka landamærum sínum.
Mótið verður ekki spilað í haust þar sem Eyjaálfan setur forgang á undankeppni HM. Næsti lausi gluggi til að halda mótið er því líklegast næsta sumar, 2021.
Athugasemdir