banner
   sun 26. apríl 2020 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Lloris: Forréttindi að spila fyrir Mourinho
Hugo Lloris
Hugo Lloris
Mynd: Getty Images
Franski markvörðurinn Hugo Lloris segir það forréttindi að spila fyrir Jose Mourinho í viðtali við Eurosport í dag.

Mourinho tók við Tottenham í nóvember eftir að Mauricio Pochettino var látinn taka poka sinn.

Tottenham er í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 41 stig þegar níu leikir eru eftir af deildinni og í baráttu um Meistaradeildarsæti.

„Hann er frábær og mikill karakter. Fólk er eflaust með ýmsar hugmyndir um hvernig hann er með því að lesa fjölmiðla en þegar maður er með honum á hverjum degi og á æfingasvæðinu þá eru þetta forréttindi," sagði Lloris.

„Hann hefur þjálfað mörg frábær lið og marga frábæra leikmenn og er með mikla reynslu og marga titla á ferlinum. Maður fær tækifæri til að læra svo mikið af honum," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner