Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. apríl 2020 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Nainggolan opinn fyrir því að fara aftur til Roma
Radja Nainggolan væri til í að spila fyrir Roma
Radja Nainggolan væri til í að spila fyrir Roma
Mynd: Getty Images
Radja Nainggolan, leikmaður Cagliari á Ítalíu, er opinn fyrir því að fara aftur til Roma.

Belgíski miðjumaðurinn spilaði með Roma frá 2014 til 2018 þar sem hann var í lykilhlutverki á miðjunni áður en hann samdi við Inter.

Hann átt í vandræðum með að festa sig í sessi hjá Inter og var hann lánaður til Cagliari fyrir þetta tímabil. Þar hefur hann fundið taktinn en hann segist opinn fyrir því að snúa aftur til Roma.

„Ég myndi fara aftur til Roma ef ákveðnum skilyrðum er mætt," sagði Nainggolan.

„Það er alltaf möguleiki. Ég eyddi frábærum árum í Róm þar sem ég er elskaður og þar sem ég gaf allt mitt fyrir félagið," sagði hann á Instagram.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner