Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   sun 26. maí 2019 06:00
Oddur Stefánsson
Heimild: Goal 
Rojo býst við að vera áfram í United
Mynd: Getty Images
Marcus Rojo hefur átt hræðilegt tímabil þar sem hann hefur verið mikið meiddur og átt slappa leiki inn á milli.

Marcus Rojo á von á að vera lengur í Manchester United. Hann segir þó að Boca Juniors hafi reynt að fá hann í sínar raðir.

Hann hefur verið orðaður í burtu frá Manchester og hefur aðeins spilað sex leiki á þessu tímabili.

Hann sagði í viðtali við El Dia „Ég væri til í að vera áfram í United, ég spurði þjálfarann út í áætlanir hans fyrir mig fyrir lok tímabils." sagði Rojo

„Hann sagði að ég væri hluti af áætlunum hans fyrir næsta tímabil og að hann vildi að ég kæmi mér aftur í líkamlegt stand."

Samningur Rojo gildir til 2021 með möguleika á að framlengja um 12 mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner