Brede Hangeland, fyrrum varnarmaður Fulham og norska landsliðsins, er mættur til Rostov við Don til að lýsa leik Íslands og Króatíu í beinni í norska ríkissjónvarpinu í kvöld.
„Ég vona að Ísland komist áfram en þetta verður erfitt," sagði Hangeland
„Það er svo heitt hér og þetta mun reyna á. Á einhverjum tímapunkti þarf Ísland að reyna að ná í sigurinn. Það væri skynsamlegt hjá Íslandi að spila eins og alltaf og vera þéttir. Leikurinn opnast undir lokin og þá mun Ísland vonandi skora."
Hangeland spáir því að Ísland vinni í kvöld og fylgi Króatíu áfram í 16-liða úrslitin.
„Ég vona að Argentína vinni 1-0 og Ísland 2-0," sagði Hangeland léttur að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir