Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júní 2018 14:30
Arnar Daði Arnarsson
Hallbera spáir í leik Íslands og Króatíu
Icelandair
Hallbera Guðný spáir Íslandi sigri í dag.
Hallbera Guðný spáir Íslandi sigri í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland og Króatía mætast í lokaleik D-riðils á HM í Rostov við Don í dag klukkan 18:00.

Landsliðskonan og leikmaður Vals í Pepsi-deild kvenna, Hallbera Guðný Gísladóttir spáir í leikinn sem framundan er.

Ísland 1 - 0 Króatía(Klukkan 18:00)
Ég held og vona að Ísland vinni þennan leik 1-0. Króatar munu hafa töluverða yfirburði þrátt fyrir að spila ekki á sínu allra sterkasta liði, en íslenski varnarmúrinn mun standast pressuna og Gylfi skorar stórglæsilegt mark úr aukaspyrnu þegar um 20 mínútur eru eftir af leiknum og allir munu gleyma vítaspyrnuklúðrinu. Hvort þessi úrslit dugi svo til að koma okkur áfram verður að koma í ljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner