Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. júní 2018 06:00
Magnús Már Einarsson
Ísland og Króatía bæði í varabúningum í dag
Icelandair
Hvítir í kvöld.
Hvítir í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland og Króatía spila bæði í varabúningum sínum þegar þau mætast í Rostov við Don klukkan 18:00 í kvöld. Króatar eru í rauðum og hvítum aðalbúningum og þar sem nýi íslenski búningurinn er með hvítu og rauðu á ermunum þá verða bæði lið í varabúningum í kvöld.

Þetta er nýtt en hingað til hafa Ísland og Króatía verið í aðalbúningum sínum þegar þau mætast.

Íslenska liðið verður í hvítum varabúningum sínum líkt og í 1-1 jafnteflinu gegn Argentínu í fyrsta leik. Hannes Þór Halldórsson, markvörður, verður í rauðum búningi líkt og gegn Argentínu.

Króatar leika aftur á móti í svörtum og dökkbláum varabúningum sínum.

Ísland - Króatía

Ísland
Markmenn: Rauðir
Útileikmenn: Hvítir

Króatía
Markmenn: Grænir
Útileikmenn: Svartir/dökkbláir
Athugasemdir
banner
banner
banner