Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. júní 2018 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Reiknaðu út hvernig lokaumferðin fer hjá Íslandi
Icelandair
Kemst Ísland í 16-liða úrslitin?
Kemst Ísland í 16-liða úrslitin?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það ríkir mikil spenna fyrir lokaumferð D-riðils á Heimsmeistaramótinu í fótbolta sem fer fram í kvöld.

Eins og flestir vita leika Argentína, Króatía, Ísland og Nígería í D-riðli.

Fyrir lokaumferðina er það ljóst að Króatía er komið áfram í 16-liða úrslitin en Argentína, Ísland og Nígería eiga öll möguleika á að fara áfram, Nígería er þó í bestu stöðunni af þessum þremur liðum, sigri þeir Argentínu eru þeir komnir áfram.

Það er ljóst að Ísland þarf að vinna Króatíu til að eiga möguleika á að fara áfram og treysta á að Argentína vinni Nígeríu en það má ekki vera með of mörgum mörkum, ef Argentína og Nígería skilja jöfn og Ísland vinnur Króatíu þá gæti Ísland einnig komist áfram.

Það eru margir möguleikar í stöðunni, en maður að nafni Ian Hutchinson hefur nú sett saman forrit þar sem einfalt er að sjá hvaða möguleikar eru í stöðunni.

Smelltu hér til að reikna út hvernig lokaumferðin fer hjá Íslandi



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner