Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 26. júní 2019 08:30
Arnar Helgi Magnússon
Chicharito fær leyfi til þess að yfirgefa West Ham
Mynd: Getty Images
Javier "Chicharito" Hernandez hefur fengið leyfi til þess að yfirgefa West Ham í sumar, kjósi hann það.

Hernandez kom til West Ham frá Bayer Leverkusen árið 2017 og hefur síðan þá spilað 53 leiki fyrir liðið og skorað í þeim fimmtán mörk.

„Umboðsmaðurinn minn er í Mexíkó og er núna að vinna í þessum málum. Hann er að skoða ýmsa hluti og vonandi finnum við nýtt félag," segir Hernandez.

Hann er þó ekki búinn að loka á þann möguleika að spila með West Ham í eitt ár í viðbót.

„Ef ekkert gerist þá mun ég glaður taka ár hér í viðbót en ég er samningsbundinn til næsta sumars.

Athugasemdir
banner
banner
banner