Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 26. júní 2019 17:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvíta-Rússland: Willum með sitt annað mark fyrir BATE
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Willum Þór Willumsson var á skotskónum þegar BATE Borisov vann sigur á Sputnik í bikarkeppninni í Hvíta-Rússlandi í dag.

Willum gerði síðasta mark BATE í leiknum á 84. mínútu. Leikurinn endaði með 5-2 sigri Willums og félaga. Willum var í byrjunarliði BATE og lék allan tímann.

Þetta er annað markið sem Willum skorar frá því hann gekk í raðir BATE. Hitt markið hans kom líka í bikarkeppninni, í 8-liða úrslitunum á síðustu leiktíð.

Leikurinn í dag var í 32-liða úrslitum bikarsins og er BATE því komið áfram í 16-liða úrslit.

BATE er í öðru sæti Hvít-rússnesku deildarinnar, tveimur stigum frá toppnum. Willum hefur verið á mála hjá liðinu frá því í febrúar á þessu ári. Hann var keyptur til félagsins frá Breiðabliki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner