Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er ósáttur með Megan Rapinoe, sem er fyrirliði bandaríska kvennalandsliðsins ásamt Alex Morgan og Carli Lloyd.
Fótboltatímaritið Eight by Eight spurði hana hvort hún væri spennt að heimsækja Hvíta húsið ef Bandaríkin myndu vinna HM sem núna er í fullum gangi.
Bandaríkin mæta gestgjöfum Frakklands í 8-liða úrslitunum.
„Ég ætla ekki í fjandans Hvíta húsið, okkur verður ekki boðið - ég efast um það," sagði Rapinoe.
Trump fékk að vita af þessum ummælum og fór hann þá á Twitter eins og hann gerir svo oft.
„Megan á aldrei að vanvirða landið okkar. Hvíta húsið, eða fánann. Sérstaklega í ljósi þess að svo mikið hefur verið gert fyrir hana og liðið," skrifaði Trump.
Hann bætti svo við að hann sé mikill aðdáandi bandaríska liðsins og kvennaknattspyrnu almennt. Hann ætlar að bjóða liðinu í Hvíta húsið hvort sem það vinnur mótið eða ekki. Megan ætti þó að einbeita sér að því að vinna, ekki tala.
....invited Megan or the team, but I am now inviting the TEAM, win or lose. Megan should never disrespect our Country, the White House, or our Flag, especially since so much has been done for her & the team. Be proud of the Flag that you wear. The USA is doing GREAT!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) June 26, 2019
Athugasemdir