Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. júní 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bestur í 2. deild: Besta afmælisgjöf sem ég get ímyndað mér
Hrvoje Tokic (Selfoss)
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Hrvoje Tokic skoraði þrennu þegar Selfoss lagði Kára fyrir rúmri viku síðan í opnunarleik 2. deildar karla. Leikurinn endaði 3-4 í Akraneshöllinni. Tokic er leikmaður 1. umferðar hjá Fótbolta.net.

Tokic var í viðtali eftir leikinn en hann varð þrítugur þann 17. júní.

„Það var mikilvægast að vinna og það var svo mikilvægt að ég get ekki lýst því fyrir þér. Það er ótrúlegt því þetta er í fyrsta sinn frá því ég byrjaði að æfa fótbolta þar sem ég spila á afmælisdeginum, Þetta var því frábært, besta afmælisgjöf sem ég get ímyndað mér."

Baldvin Borgarsson var fréttaritari Fótbolta.net á leiknum og hann óskaði Tokic til hamingju með mörkin en spurði Tokic af hverju hann væri að spila í 2. deild.

„Takk fyrir hlý orð. Ég er ánægður að hafa skorað og ég er alltaf að spila eins mikið og ég get, stundum í Pepsi og stundum annars staðar en ég er svo ánægður með þetta."

Á 83. mínútu leiksins vildu Káramenn fá Tokic af velli fyrir að sparka í Birgi Stein Ellingsen. Tokic var á gulu en slapp. Hann segist ekki hafa sparkað í hann.

„Ég sagði við hann að ef ég sparka í þig þá verður það ekkert sérstaklega þægilegt fyrir þig en ég er fagmaður og myndi aldrei sparka í hann," sagði Tokic. Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni má sjá með því að smella hér.

Næsta umferð í 2.deild:
Heil umferð fer fram á morgun og má sjá leikina hér að neðan.

laugardagur 27. júní - 2. umferð
13:00 Fjarðabyggð-ÍR (Fjarðabyggðarhöllin)
14:00 Selfoss-Njarðvík (JÁVERK-völlurinn)
14:00 KF-Víðir (Ólafsfjarðarvöllur)
14:00 Völsungur-Haukar (Vodafonevöllurinn Húsavík)
14:00 Þróttur V.-Kári (Vogaídýfuvöllur)
16:00 Kórdrengir-Dalvík/Reynir (Framvöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner