„Þetta var háspenna, lífshætta," sagði Jón Páll Pálmason, þjálfari Ólafsvíkinga, við Einar Knútsson eftir tap gegn Víkingi R. í Mjólkurbikarnum. Leikið var til þrautar og þurfti bráðabana í vítaspyrnukeppni til að útkljá hvort Víkingsliðið færi með sigur af hólmi.
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 5 - 6 Víkingur R.
„Við vorum orðnir þreyttari í seinni hálfleiknum. Víkingar eru með gott lið, ríkjandi bikarmeistarar og telja sig geta unnið Pepsi Max-deildina. Ætluðum að halda boltanum betur en við fengum ekki eins mikið boltann og við hefðum viljað. Þrátt fyrir það sköpuðum við okkur stórhættuleg færi."
Gonzalo skoraði gott mark og Jón Páll segir sitt lið hafa átt möguleika á að bæta við forskotið seint í leiknum.
„Við hefðum getað tekið 2-0 efir 83 mínútur en ég er mjög ánægður með frammistöðuna hjá mínum mönnum. Að spila hálftíma einum færri á móti svona liði og komast í vítaspyrnukeppni. Mér fannst það ákveðið afrek," sagði Jón að lokum.
Athugasemdir