„Við vorum í góðu skapi. Tónlistin var góð. Ég var alltaf betri dansari en fótboltamaður. Því miður þá gat ég samt ekki haft lifibrauð mitt af dansinum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, um dansspor sín.
Leikmannahópurinn og starfslið hittust á hóteli, grilluðu og horfðu á Manchester City tapa fyrir Chelsea. Klopp steig dans seint um kvöldið en myndband hefur birst á samfélagsmiðlum af honum og undir ómar 'Push The Feeling On' með Nightcrawlers.
„Ef ég vil dansa þá dansa ég. Ég var ekkert að gera þetta fyrir strákana. Strákarnir vita að mér finnst gaman að dansa. Gærkvöldið var góð stund í mínu lífi og ég vildi dansa."
Klopp segir að stundin hafi verið það tilfinningarík að hann hafi ekki getað haldið ræðu fyrir sitt lið í gærkvöldi.

Hahahaha
— The Anfield Wrap (@TheAnfieldWrap) June 26, 2020
My manager pic.twitter.com/Y9LlBPOLZ2
Athugasemdir