Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 26. júní 2020 13:09
Elvar Geir Magnússon
Martinelli ekki meira með á tímabilinu
Gabriel Martinelli.
Gabriel Martinelli.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur staðfest að sóknarmaðurinn Gabriel Martinelli muni ekki spila meira á tímabilinu.

Þessi nítján ára Brasilíumaður hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hné.

Martinelli hefur sýnt skemmtileg tilþrif á tímabilinu, hans fyrsta í enska boltanum. Hann er með tíu mörk í öllum keppnum.

Martinelli meiddist á æfingu og gat ekki spilað í sigri Arsenal gegn Sotthampton í gær.

Tímabilið hefur verið brösótt hjá Arsenal og liðið er í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner