Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   sun 26. júní 2022 21:54
Þorsteinn Haukur Harðarson
Eyjólfur Héðinsson: Á ekki von á að ég taki við liðinu
Eyjólfur í leik með Stjörnunni.
Eyjólfur í leik með Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

"Ég er sammála því að þetta var ekki 6-1 leikur. Okkur var refsað grimmilega fyrir mistök og það er ástæða fyrir að þeir eru í efstu deild og við í 2.deild. Góð lið refsa fyrir mistök sem andstæðingurinn gerir og við fengum að kenna á því í dag," sagði Eyjólfur Héðinsson, leikmaður ÍR , eftir tap gegn FH í Mjólkurbikarnum í kvöld.


Lestu um leikinn: FH 6 -  1 ÍR

"Það var 2-0 í hálfleik en það hefði alveg getað verið 2-1 eða 2-2. Þá vorum við ágætlega sáttir við spilamennskuna en svo komum við út og fengum strax tvö mörk á okkur. Þá var þetta farið að snúast um smá damage control seinustu 40 mínúturnar."

Eins og kunnugt er hætti Arnar Hallsson sem þjálfari ÍR nýlega og Eyjólfur hefur stýrt liðinu í seinustu tveimur leikjum. Hann segist ekki reikna með því að hann taki við liðinu alfarið en útilokar þó ekki neitt.

"Nei ég á ekki von á því. Það kemur eiginlega bara í ljós. Ég er ennþá leikmaður en hef verið að kljást við smá meiðsli. Vonandi verð ég kominn inn á völlinn í næsta leik og ég held það verði fundinn einhver önnur lausn á þessu."

Hann segist samt kunna vel við sig í þjálfarahlutverkinu.

"Ég hef verið að taka þessi námskeið hjá KSÍ og var inni í þjálfarateymi Stjörnunnar á vissan hátt síðastlliðinn tvö ár. Ég á pottþétt eftir að þjálfa eitthvað í framtíðinni. Hvort það verði hjá ÍR núna eða bara einhverntímann seinna kemur bara í ljós."


Slapp
banner