Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 26. júlí 2020 19:29
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Ayew úr skúrki í hetju
Swansea með yfirhöndina gegn Brentford
Andre Ayew fagnar marki sínu.
Andre Ayew fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Swansea 1 - 0 Brentford
1-0 Andre Ayew ('81 )
Rautt spjald: Rico Henry, Brentford ('66)

Andre nokkur Ayew reyndist hetja Swansea er liðið tók á móti Brentford í fyrri leik liðanna í undanúrslitaeinvíginu í úrslitakeppni Championship-deildarinnar.

Þetta var hörkuleikur en það dró til tíðinda á 63. mínútu þegar Swansea fékk vítaspyrnu. Ayew fór á vítapunktinn en David Raya sá við honum.

Stuttu síðar fékk Rico Henry, bakvörður Brentford, að líta rauða spjaldið fyrir groddaralega tæklingu. Ayew breyttist svo úr skúrki í hetju á 81. mínútu þegar hann skoraði fallegt mark. Það reyndist sigurmarkið.

Lokatölur 1-0 fyrir Swansea en liðin mætast í London í vikunni. Þá ræðst hvaða lið spilar til úrslita um sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner