Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 26. júlí 2020 19:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gummi Magg: Hefðir ekki viljað vita fyrstu viðbrögð eftir leik
Lengjudeildin
Gummi í leik gegn Þór fyrr í sumar.
Gummi í leik gegn Þór fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Ég held þú hafir ekki viljað vita fyrstu viðbrögð eftir leik en maður er aðeins búinn að róast. Erum andskoti miklir klaufar að tapa þessu niður. Erum 2-0 yfir þegar hálftími er eftir. Eins og Bjössi sagði eftir síðasta leik þá er þetta saga sumarsins, erum að hleypa liðum inn í leikina og spurning um að stíga aðeins upp," sagði Guðmundur Magnússon, einn af markaskorurum Grindavíkur, eftir jafntefli gegn Magna í dag.

Lestu um leikinn: Magni 3 -  3 Grindavík

„Svona gerist í íþróttum, við erum ekkert eina liðið sem lendir í svona. Við slökum kannski aðeins á."

Jafnteflið var það fimmta í röð. Það getur ekki verið ásættanlegt?

„Nei, það er ekki gott en á meðan við erum ekki að tapa leikjunum þá er það eitt og sér jákvætt. Við verðum að fara vinna leikina þegar við erum komnir í 2-0 eins og í dag."

„Þetta er þungt en menn fá tíma á heimleiðinni til að hugsa málin. Menn verða að núllstilla sig og koma sterkari til baka eftir smá frí,"
sagði Gummi að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner