Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   sun 26. júlí 2020 19:20
Helgi Fannar Sigurðsson
Igor Bjarni: Veist aldrei hvað þú færð í þessari deild
Igor Bjarni Kostic.
Igor Bjarni Kostic.
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
„Það er ofboðslega gott að fá 3 stig. Við erum sáttir við það," sagði Igor Bjarni Kostic, þjálfari Hauka, eftir 0-2 sigur á Víði í dag.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Haukar komu sterkari út í þann seinni og kláruðu leikinn með mörkum frá Kristófer Dan Þórðarsyni og Tómasi Leó Ásgeirssyni.

„Við eigum nokkuð sterkan seinni hálfleik eftir pínu passívan fyrri hálfleik. Það er gott að geta spjallað við strákana til að fá viðbrögð sem endar með þremur stigum."

Þrátt fyrir að vera sterkari í seinni hálfleik segir Igor að engin stór atriði hafi verið rædd í hálfleik.

„Það voru bara smotteríshlutir. Í raun og veru bara svona 'fundamental' hlutir sem eiga alltaf að vera til staðar."

Þrátt fyrir sigur finnst Igor sínir menn hafa verið pínu þungir í leiknum í dag.

„Við erum búnir að spila mikið, æfa mikið og ekkert endilega rótera liðinu mikið. Við þurfum aðeins að endurskoða hvað við erum að gera á æfingasvæðinu."

Haukar eiga heimaleik gegn Dalvík/Reyni í næstu umferð. Igor var spurður út í hvort það mætti ekki kalla það skyldusigur í ljósi stöðu liðanna í deildinni.

„Þú veist aldrei hvað þú færð í þessari deild. Við þurfum allavega að skerpa okkur aðeins. Þetta verður allavega erfitt, ég veit það.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner