Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   sun 26. júlí 2020 19:18
Anton Freyr Jónsson
Jón Sveins: Okkur líður vel í Safamýrinni
Lengjudeildin
Jón Þórir Sveinsson var eðlilega kátur að leikslokum
Jón Þórir Sveinsson var eðlilega kátur að leikslokum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Að vinna 6-1 eru ágætis yfirburðir, við vorum bara tilbúnir í leikinn. Maður var mjög ánægður með framlagið og ákæfðina sem við mættum með út á völl og menn ætluðu sér bara að vinna leikinn." voru fyrstu viðbrögð Jón Þóris þjálfara Fram eftir 6 - 1 sigurinn á Þór í Safamýrinni í dag.

Lestu um leikinn: Fram 6 -  1 Þór

Þórsararnir komast yfir í leiknum en eftir það var þetta aldrei spurning hvoru meginn sigurinn myndi detta.

„Það er búið að vera karakterinn hjá okkur í sumar, við höfum lent undir og fengið á okkur jöfnunarmörk en við höfum haldið áfram alltaf og það gerðist í dag og við kláruðum leikinn þarna á stuttum tíma í seinni hálfleik, skoruðum 3 mörk og keyrðum á það sem við ætluðum að gera og það gekk fullkomnlega upp í dag."

Komu Þórsararnir Jón Þóri eitthvað á óvart í dag?

„Nei ekkert endilega, þeir spiluðu nú nokkurvegin eins og þeir hafa verið að gera en við vorum kannski bara tilbúnir í þetta og það er bara þannig í þessari deild að það eru mikið af löngum og erfiðum ferðalögum og þeim til vorkunnar að þurfa ferðast í þennan leik og við vorum bara frískari og meira tilbúnir í allt sem að til þurfti."

Framarar mæta Fylki í bikarnum á Fimmtudaginn en Framarar hljóta að vera spenntir fyrir því verkefni.

„Jú, bara frábært og vera heima, okkur líður vel hérna í Safamýrinni og við ætlum að halda áfram að láta það vera okkar vígi. Það er bara virkilega skemmtilegur bónus að fá eitt Pepsí Max-deildar test á miðju sumri og við förum í þann leik til að vinna hann."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.


Athugasemdir
banner
banner
banner