Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 26. júlí 2020 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Veðjaði á að Lingard myndi hvorki skora né leggja upp
Lingard skoraði á 98. mínútu í lokaumferðinni
Lingard var á skotskónum í dag.
Lingard var á skotskónum í dag.
Mynd: Getty Images
Jesse Lingard var skotskónum í dag þegar Manchester United vann 2-0 sigur á Leicester. Hann gulltryggði Meistaradeildarsætið þegar lítið var eftir af leiknum.

Lingard hefur ekki átt gott tímabil og hefur spiltími hans minnkað mjög eftir því sem liðið hefur á tímabilið.

Fyrir leikinn í dag hafði hann ekki skorað í ensku úrvalsdeildinni síðan í fyrsta leik Ole Gunnar Solskjær við stjórnvölinn, í desember 2018. Hann tók hins vegar upp á því að skora í dag eftir slæm mistök Kasper Schmeichel.

Lingard fagnaði markinu vel en mjög líklegt er að maður að nafni Anthony Johnson hafi ekki gert það.

Johnson hafði nefnilega veðjað á það að Lingard myndi hvorki skora né leggja upp í deildinni á tímabilinu. Hann lagði þrjár evrur undir og hefði fengið 135 evrur til baka. Lingard kom hins vegar í veg fyrir það á síðustu stundu.

Mark Lingard má sjá hérna.


Athugasemdir
banner
banner