Marko Arnautovic lenti í Bologna í kvöld en hann er að ganga í raðir félagsins eftir tvö tímabil í kínversku deildinni þar sem hann var á mála hjá Shanghai SIPG.
Stuðningsmenn Bologna eru heldur betur spenntir að fá Arnautovic til liðsins. Þeir fjölmenntu í kvöld til að taka á móti Austurríkismanninum, mættu með flugelda, fána og blys. Stuðningsmenn sungu nafn Arnautovic og buðu hann velkominn til borgarinnar og félagsins.

Myndband af móttökunum má sjá hér að neðan.
Arnautovic er fyrrum leikmaður Twente, Werder Bremen, Stoke og West Ham. Hann var þá á láni hjá Inter Milan tímabilið 2009-2010. Hann er 32 ára og hefur spilað 91 landsleik fyrir Austurríki.
🔴🔵 #Bologna, tifosi in delirio per l'arrivo di #Arnautović pic.twitter.com/Gus3ALLa4W
— TUTTOmercatoWEB (@TuttoMercatoWeb) July 26, 2021
Athugasemdir