Það er óhætt að segja að Sambía sé skemmtilegasta lið Ólympíuleikanna.
Sambía hefur spilað tvo leiki á mótinu og í þessum leikjum hafa verið skoruðu 21 mark - hvorki meira né minna.
Það er ávallt veisla þegar Sambía spilar. Þær töpuðu 10-3 í fyrsta leik gegn Hollandi en náðu svo mjög óvæntu jafntefli gegn Kína í öðrum leik sínum, 4-4.
Með því að ná í eitt stig í erfiðum riðli sínum hefur Sambía nú þegar komið á óvart í mótinu. Einn leikmaður liðsins skráði sig líka á spjöld sögunnar á mótinu. Barbra Banda, fyrirliði liðsins, er búin að skora þrennu í báðum leikjum Sambíu til þessa og er hún fyrsta konan sem skorar þrennu í tveimur leikjum á sömu Ólympíuleikunum.
Virkilega vel gert hjá henni en Sambía er í möguleika á að komast áfram fyrir lokaumferð riðilsins. Sambía mætir Brasilíu í lokaumferð riðilsins á þriðjudag.
🎯 🎯🎯🎯🎯🎯 First player to score consecutive hat-tricks in a single Women's #OlympicFootball tournament
— FIFA Women's World Cup (@FIFAWWC) July 24, 2021
⚽️⚽️⚽️⚽️⚽️⚽️ Equalled Christine Sinclair's record six-goal tally in 2012
👏🏽 Congratulations Zambia captain Barbra Banda 🇿🇲@Copper_Queens | #Tokyo2020 | #Olympics pic.twitter.com/aQLXdNcslX
Athugasemdir