Enski varnarmaðurinn Steven Caulker æfir nú með enska B-deildarliðinu Wigan Athletic en hann hefur verið án félags frá því hann yfirgaf Dundee United í sumar.
Caulker, sem er 26 ára gamall, hefur leikið fyrir níu félög á ferlinum en þar má nefna Tottenham Hotspur, Liverpool, Cardiff City, Southampton og Swansea.
Hann er eins og áður segir án félags og hefur verið frá því í sumar en er nú byrjaður að æfa með Wigan í B-deildinni á Englandi.
Aston Villa hefur einnig sýnt honum áhuga en Wigan vill þétta varnarleikinn enn frekar.
Liðið er nýliði í B-deildinni og er nú þegar í fimmta sæti eftir fyrstu níu leikina.
Athugasemdir